Fréttir
Fréttir og greinar
Bókanir
Styrkir
Um Landsmennt
Tenglar
Veftré
Umsóknarblöð á netinu
Fréttir - 15. júní 2010
Breyting á reglum um einstaklingsstyrki

Stjórn Landsmenntar hefur ákveðið að taka upp eftirfarandi viðbót við reglur sjóðsins um einstaklingsstyrki;

Starfstengt réttindanám: Félagsmenn ...


 
Fréttir - 31. maí 2010
Ársskýrsla Landsmenntar 2009

Árið 2009 hefur verið gert upp af stjórn Landsmenntar og er staða sjóðsins sterk, hvort heldur sem litið er á fjárhagslega stöðu eða stöðu gagnvart fjölda ...



Starfsgreinasambandið

Samtök atvinnulífsins
15. júní 2010

Breyting á reglum um einstaklingsstyrki

Allt að kr. 132.000.- í styrk vegna starfsmenntunar

Stjórn Landsmenntar hefur ákveðið að taka upp eftirfarandi viðbót við reglur sjóðsins um einstaklingsstyrki;

 

Starfstengt réttindanám: Félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn á fræðslustyrk síðustu þrjú ár eiga rétt á styrk allt að kr. 132.000.- fyrir eitt samfellt námskeið/nám samkvæmt nánari reglum sjóðsins.

 

Reglan tekur gildi f.o.m. 1. júlí 2010 og gildir gagnvart námi/námskeiðum sem hefjast eftir þann tíma.

 
31. maí 2010

Ársskýrsla Landsmenntar 2009

Ársskýrslan á heimasíðu Landsmenntar

Árið 2009 hefur verið gert upp af stjórn Landsmenntar og er staða sjóðsins sterk, hvort heldur sem litið er á fjárhagslega stöðu eða stöðu gagnvart fjölda verkefna sem sjóðurinn hefur komið að.

 

Styrkloforðum til fyrirtækja fjölgaði um 38% á milli ára og er ánægjulegt að sjá hversu vel fyrirtæki hafa tekið við sér í tengslum við endur-og símenntun starfsmanna sinna. Það er ekki síður mikilvægt að sinna þessum þætti á tímum kreppu og aðhalds heldur en á tímum uppgangs og þennslu.

 

Styrkjum til einstaklinga fjölgaði einnig á milli ára og voru greiddir út samtals 1769 styrkir á árinu. Nýting félagsmanna aðildarfélaganna hefur verið mjög jöfn á milli ára og núna fjölgaði þeim um 5%. Þá er skipting á milli karla og kvenna nánast til helminga en karlar eru með 52% styrkjanna á móti 48% kvenna.

 

Unga fólkið í aðildarfélögunum er langstærsti hópur notenda sjóðsins þar sem hópurinn 21-30 ára fólk er um 37% af heildinni.

 

Sjá nánar ársskýrslu hér. 

 
19. maí 2010

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins þjónar vinnumarkaðnum öllum

11. maí 2010

Færni í ferðaþjónustu á Egilsstöðum

4. maí 2010

Grunnmenntaskólanum á Sauðárkróki slitið

7. apríl 2010

Fyrstu nemendurnir útskrifaðir úr Skrifstofuskólanum á Snæfellsnesi

22. mars 2010

Íslenska Gámafélagið ehf. með Fræðslustjóra að láni

18. mars 2010

Útskrifaðir nemendur í Færni í ferðaþjónustu

18. febrúar 2010

Menntasetrið á Þórshöfn öðrum til fyrirmyndar

7. janúar 2010

Dagur menntunar í ferðaþjónustu


eldri fréttir

 Landsmennt - Skeifan 8, 2. hæð - 108 Reykjavík - 599 1450 - landsmennt@landsmennt.is